Skilmálar Suður England ehf

Skilgreiningar:

1. Hugtakið “búnaður” merkir eftirleiðis hvers konar vélar, tæki, verkfæri og annað það sem leigusali – Suður England ehf. – býður viðskiptavinum sínum til leigu á starfsstöðvum sínum.

Skyldur leigusala:

2. Leigusali afhendir leigutaka allan búnað í góðu og nothæfu ásigkomulagi.

Skyldur leigutaka:

3. Leigutaka ber við afhendingu að kynna sér ástand þess búnaðar sem hann tekur á leigu.

4. Leigutaka ber að kynna sér rétta notkun og meðferð þess búnaðar sem hann hefur á leigu.

5. Á leigutímabilinu ber leigutaka að annast allan tilfallandi rekstur og jafnframt að sinna öllu tilfallandi viðhaldi á þeim búnaði sem hann hefur á leigu hjá leigusala. Leigutaki skal m.a. standa straum af eldsneytiskostnaði, kostnaði við smurningu og vegna þrifa á búnaði. Þá skal leigutaki m.a. annast losun vatns af vatnskældum búnaði til að sporna við frostskemmdum. Viðhald á búnaði skal fara fram í samráði við leigusala.

6. Leigutaki ber hlutlæga ábyrgð á öllu því tjóni sem kann að verða á búnaði sem hann hefur leigt af leigusala og stafar af rangri eða ógætilegri notkun á búnaðinum og verður ekki rakið til eðlilegs slits á búnaði. Viðgerðarþjónusta leigusala framkvæmir mat á því hverju sinni, hvort tjón stafi af rangri eða ógætilegri notkun á búnaði. Um tjónaálag vísast til 28. gr.

7. Leigutaki skal sýna fyllstu aðgæslu við notkun og meðferð þess búnaðar sem hann hefur á leigu hjá leigusala. Þá skal leigutaki fylgja ákvæðum laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum í hvívetna, sem og stjórnvaldsfyrirmælum gefnum út á grundvelli laganna. Sér í lagi:
• Reglugerð nr. 729/2018 um röraverkpalla.
• Reglugerð nr. 367/2006 um notkun tækja.

8. Leigutaki skal tryggja, svo sem honum er framast unnt, að búnaður sem hann hefur á leigu hjá leigusala sé ekki útsettur fyrir þjófnaði, tjóni eða öðrum skakkaföllum.

9. Leigutaki ber fulla ábyrgð á því fjárhagslega tjóni sem leigusali kann að verða fyrir ef búnaði er stolið úr vörslum leigutaka, eða ef búnaður glatast af öðrum orsökum. Leigutaka berað greiða að fullu andvirði búnaðar sem glatast með þeim hætti sem að framan segir. Þá ber leigutaka einnig að greiða leigugjald samkvæmt gjaldskrá, allt þar til hinn glataði búnaður hefur verið að fullu bættur.

10. Glatist búnaður að hluta, fer um þann hluta samkvæmt 9. gr.

11. Leigutaka er með öllu óheimilt að framleigja búnað sem hann hefur á leigu hjá leigusala eða lána hann þriðja manni nema að fengnu skriflegu leyfi leigusala.

12. Það fellur alfarið í hlut leigutaka að annast flutninga á þeim búnaði sem hann hefur á leigu hjá leigusala. Gildir þetta jafnt um flutninga frá og til starfsstöðva leigusala, sem og aðra flutninga á milli verkstaða, starfsstöðva eða geymslusvæða leigutaka á leigutímabilinu. Leigutaki er einn ábyrgur fyrir búnaði á meðan flutningum stendur.

13. Leigutaki skal bera allan kostnað sem kann að falla til vegna flutninga á búnaði. Víkja má frá þessu ákvæði með samkomulagi á milli leigusala og leigutaka. Slíkt samkomulag skal starfsmaður leigusala staðfesta með áritun sinni á samningseyðublað.

Leigutímabil

14. Tímabil leigu hefst við undirritun leigusamnings og lýkur þegar leigutaki hefur skilað þeim búnaði sem hann hefur á leigu aftur í vörslur leigusala. Skil á búnaði geta aðeins átt sér stað á starfsstöð leigusala, innan þess opnunartíma sem tilgreindur er á vefsvæði leigusala hverju sinni. Leigugjald samkvæmt verðskrá reiknast til samræmis við lengd leigutímabils.

Leigugjöld, önnur gjöld og innheimta:

15. Leigugjöld, sem og önnur gjöld fyrir hvers kyns vörur og þjónustu, ákvarðast samkvæmt gjaldskrá leigusala (Suður England ehf.)
hverju sinni.

16. Leigusali áskilur sér rétt til að binda leigu á búnaði því skilyrði að leigutaki greiði leigusala innborgun til tryggingar greiðslu leigugjalds. Í gjaldskrá leigusala getur að líta upplýsingar um hvaða búnaður sé bundinn framangreindu skilyrði um innborgun. Fjárhæð innborgunar ákvarðast samkvæmt gjaldskrá leigusala hverju sinni og er leigutaki einvörðungu heimilt að greiða hana með greiðslukorti eða sambærilegum greiðslumiðli, sbr. 15. gr.

17. Innborgun samkvæmt 16. gr. er leigutaka skylt að greiða að fullu við undirritun leigusamnings. Greiði leigutaki ekki innborgun við það tímamark, í þeim tilvikum sem honum er það skylt, kemst bindandi leigusamningur ekki á. Leigusali áskilur sér rétt til að falla frá þessu ákvæði ef sérstaklega stendur á. Viðskiptamenn í reikningsviðskiptum við leigusala eru undanþegnir innborgunarskyldu samkvæmt ákvæði þessu.

18. Leigusali áskilur sér rétt til að innheimta leigugjald með útgáfu reiknings á hendur leigutaka nái leigutímabil yfir næstu mánaðarmót frá upphafi leigutímabils, enda hafi leigutaki haft búnað á leigu í tvær vikur (14 daga) hið minnsta við mánaðarmót. Þá áskilur leigusali sér rétt til að gefa út reikning samkvæmt gjaldskrá eða samningi við leigutaka um hver mánaðarmót upp frá því tímamarki sem að ofan greinir, allt þar til leigutaki skilar búnaði aftur í vörslur leigusala. Þegar leigutaki skilar búnaði sem hann hefur greitt leigugjald af mánaðarlega aftur í vörslur leigusala skal hann staðgreiða það leigugjald sem stendur út af frá síðustu mánaðarmótum, allt til skiladags, samkvæmt gjaldskrá eða samkomulagi hans við leigusala.

19. Sé leigutaki í reikningsviðskiptum við Suður England ehf. er mánaðarlegt leigugjald samkvæmt
18. gr. fært í reikning hans nema sérstaklega sé samið á annan veg. Slíkt samkomulag skal starfsmaður leigusala staðfesta með áritun sinni á samningseyðublað. Þá er leigutaka sem er í reikningsviðskiptum við Suður England ehf. heimilt að staðgreiða þann hluta leigugjalds sem greint er frá í 3. málslið 18. gr. Að öðrum kosti verður umrætt gjald fært í reikning leigutaka við næstu mánaðarmót upp frá því.

20. Reikningur sem gefinn er út samkvæmt ákvæðum skilmála þessa skal gjaldfærður ekki síðar en seinasta virka dag hvers mánaðar. Gjalddagi reiknings er fyrsta virka dag næsta mánaðar. Reikningur fellur á eindaga að tuttugu dögum liðnum frá gjalddaga. Frá því að reikningur fellur á eindaga falla á hann dráttarvextir samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, allt þar til hann hefur verið að fullu greiddur. Ákvæði III. kafla laga nr. 38/2001 gilda fullum fetum um útreikning og innheimtu dráttarvaxta samkvæmt ákvæði þessu.

21. Leigutaki sem hefur greitt leigusala bætur vegna búnaðar, sem af einhverjum sökum var ekki skilað í vörslur leigusala við lok leigutímabils, sbr. 9. gr., á rétt til endurgreiðslu sem nemur fjárhæð þeirra bóta sem hann hefur greitt leigusala. Leigusali áskilur sér rétt til að innheimta leigugjald fyrir tímabilið frá því að ofangreindar bætur voru greiddar, allt þar til umræddum búnaði hefur verið skilað aftur í vörslur hans. Um innheimtu leigugjalda, sem og annarra gjalda, samkvæmt ákvæði þessu fer eftir 18. gr.

22. Um reikningsviðskipti samkvæmt skilmálum þessum gilda almennar reglur og skilmálar Suður England ehf. um
reikningsviðskipti.

23. Gjaldskrá leigusala kann að taka breytingum á leigutímabili. Áskilur leigusali sér rétt til að innheimta leigugjald samkvæmt gjaldskrá eins og hún liggur fyrir hverju sinni.

Almenn ákvæði:

24. Leigusali ber enga ábyrgð á líkams- eða munatjóni sem leigutaki eða þriðji maður kann að verða fyrir og orsakast af notkun, meðferð eða flutningi á búnaði sem leigutaki hefur undir höndum á leigutímabilinu. Þá ber leigusali enga ábyrgð á afleiddu tjóni, til að mynda tekjutapi vegna verkstöðvunar, sem rekja má til bilunar í búnaði eða annarra sambærilegra orsaka.

25. Leigusali áskilur sér rétt til að kanna ástand búnaðar sem hann hefur leigt út, hvenær sem er á leigutímabilinu, með hæfilegum fyrirvara. Leigusali skal þó ekki gefa minna en fjögurra (4) klukkustunda fyrirvara um ástandsskoðun, nema ef sérstaklega stendur á.

26. Standi leigutaki ekki skil á greiðslum leigugjalds eða annarra tilfallandi gjalda sem getið er um í skilmálum þessum eða gjaldskrá leigusala, eða vanefnir samning þennan með öðrum hætti, áskilur leigusali sér rétt til að endurheimta þann búnað sem leigutaki hefur í vörslum sínum. Að beiðni leigusala skal leigutaki afhenda leigusala búnað án tafar, enda þótt ágreiningur sé uppi á milli aðila. Sé leigutaka ekki fært að skila búnaði að ósk leigusala er honum skylt að gera nauðsynlegar ráðstafanir svo leigusali geti með góðu móti nálgast búnaðinn. Allur kostnaður sem kann að falla til vegna aðgerða samkvæmt ákvæði þessu kemur í hlut leigutaka. Endurheimt leigusala á búnaði leysir leigutaka ekki undan efndaskyldu samkvæmt skilmálum þessum.

27. Leigusali mælist eindregið til þess að leigutaki, eða umboðsmaður hans, sé viðstaddur afgreiðslu og skil á þeim búnaði sem hann tekur á leigu. Framangreint á sér í lagi við þegar búnaður, t.a.m. verkpallar, er afgreiddur ósamsettur í nokkrum hlutum, sem leigusali telur út við afgreiðslu. Leigusali ábyrgist að búnaður sé rétt talinn og ber honum halda utan um skráningu á ósamsettum búnaði við útleigu og skil. Með fjarveru sinni fyrirgerir leigutaki rétti sínum til að gera athugasemdir við afgreiðslu leigusala á búnaði.

Tjónaálag:

28. Með greiðslu tjónaálags sem nemur 10% af leigugjaldi, getur leigutaki leyst sig undan ábyrgð á tjóni sem kann að verða á búnaði, sbr. 6. gr. Leigutaki ber þó ávallt […]% sjálfsábyrgð af heildarfjárhæð bóta sem greiddar eru á grundvelli 6. gr.

Samþykki leigutaka:

29. Leigutaki hefur kynnt sér skilmála þessa og samþykkir þá með undirskrift sinni.

Skyldur leigusala:

2. Leigusali afhendir leigutaka allan búnað í góðu og nothæfu ásigkomulagi.

Skyldur leigutaka:

3. Leigutaka ber við afhendingu að kynna sér ástand þess búnaðar sem hann tekur á leigu.


4. Leigutaka ber að kynna sér rétta notkun og meðferð þess búnaðar sem hann hefur á leigu.


5. Á leigutímabilinu ber leigutaka að annast allan tilfallandi rekstur og jafnframt að sinna öllu tilfallandi viðhaldi á þeim búnaði sem hann hefur á leigu hjá leigusala. Leigutaki skal m.a. standa straum af eldsneytiskostnaði, kostnaði við smurningu og vegna þrifa á búnaði. Þá skal leigutaki m.a. annast losun vatns af vatnskældum búnaði til að sporna við frostskemmdum. Viðhald á búnaði skal fara fram í samráði við leigusala.

Leigutímabil

14. Tímabil leigu hefst við undirritun leigusamnings og lýkur þegar leigutaki hefur skilað þeim búnaði sem hann hefur á leigu aftur í vörslur leigusala. Skil á búnaði geta aðeins átt sér stað á starfsstöð leigusala, innan þess opnunartíma sem tilgreindur er á vefsvæði leigusala hverju sinni. Leigugjald samkvæmt verðskrá reiknast til samræmis við lengd leigutímabils.

Leigugjöld, önnur gjöld og innheimta:

15. Leigugjöld, sem og önnur gjöld fyrir hvers kyns vörur og þjónustu, ákvarðast samkvæmt gjaldskrá leigusala (Suður England ehf.)
hverju sinni.

Tjónaálag:

28. Með greiðslu tjónaálags sem nemur 10% af leigugjaldi, getur leigutaki leyst sig undan ábyrgð á tjóni sem kann að verða á búnaði, sbr. 6. gr. Leigutaki ber þó ávallt 10% sjálfsábyrgð af heildarfjárhæð bóta sem greiddar eru á grundvelli 6. gr.

Scroll to Top